Undirbúningur

Æ er það ekki líkt mér að vera með allt á síðustu stundu.  Nú erum við að leggja í langferðina á morgun og erum að fara í leikhúsið í dag með barnabörnin og ég rétt að byrja að pakka.

Það liggur við að ég þyrfti að fá Gyðu systur mína í að hjálpa mér en hún hefur miklar áhyggjr af minnismiðaleysi mínu.  Hún skrifar nefnilega allt á minnismiða þó að hún fari bara hér rétt út fyrir Elliðaár.  En nú sit ég hér í súpunni og ekki búin að skrifa á neina minnismiða, ég er þó búin að setja hleðslutæki af símum og myndavél í sérstakt plastbox sem að ég keypti í Bónus og næst á dagskrá er að reyna að koma páskaeggjunum sem að eiga að fara til Argentínu í stóru Topperware boxin sem að ég keypti einu sinni.

Ragnar er rólegur yfir þessu og er að búa til sitt salat í eldhúsinu, kanske að ég hespi þessu öllu af þegar ég er búin að fá minn disk af því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var skemmtilegt uppátæki hjá þér systir góð en ég vona að niðurpökkunin gangi vel, já ég væri sjálfsagt með heila bók til að skrifa niður fyrir svona reisu, mér til minnis og "hægðarauka" minnir mann á reisu Guðríðar Símonar en þið hafið það vonandi gott í þessari ferð og það verður eilítill meiri luxus á ykkur en henni.

kær kveðja

og góða ferð

Gyða systir

Gyða Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 19:28

2 Smámynd: Ár & síð

Njótið nú þessar ferðar í botn, með eða án minnismiða.
Það er næstum því sama hverju maður gleymir á leið í ferðalag, maður kemst að því að það er vel hægt að komast af án þess.
Bestu kveðjur yfir miðbaug,
Matti.  

Ár & síð, 1.4.2007 kl. 21:06

3 Smámynd: Heidi Strand

Mundu sólgleraugu og derhúfu. Það er slæmt að gleyma öðru hvoru þessa. Hatturinn þínn verður of heitur, það verður eins og heitur pottur inni í honum.

Góða ferð og ég bið að heilsa.
Bestu kveðjur, Heidi 

Heidi Strand, 1.4.2007 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband